12

M og S standa fyrir framan hóp uppreisnarþræla og búa sig undir að kremja þá uppreisn til að sýna öðrum þegum M fordæmi.

M og S voru án annars stuðnings og ætluðu sér að tækla þessa uppreisn sjálfar. M vissi að það var alveg hægt. Þrælar voru í fyrsta lagi óvopnaðir á meðan M og S voru með hvöss sverð og hnífa. Í öðru lagi eru þrælar á svo lélegu mataræði að heilsa þeirra er alltaf frekar slök og viðbrögð þeirra líka. Í þriðja lagi voru M og S fimar með sverðin.

M: "Komið nú þrælar, þið þurfið að máta sverðið mitt!"

Nokkrir þrælar tóku nokkur varfærin skref í átt að drottnurum sínum.

M gengur nú hröðum skrefum að þeim.

Þrælarnir sjá brosandi andlit drottnara síns, beitt sverðið og hvað M er ákveðin. Þeir vita hvað er framundan en geta ekkert farið. Það eina í stöðunni var að gera árás.

Þrælarnir hlaupa á móti M og með nokkrum snörpum sveiflum er M búin að særa og drepa þá alla og þeir liggja við fætur hennar.

Aðrir þrælar sjá að M er svo gott sem ósigrandi fyrir þá miðað við þeirra getu, líkamlegt ástand og vopnleysi.

En þeir geta ekkert gert úr þessu. Þeir voru búfé á leið í slátrun og þeir vissu það. Þeir voru mýs sem biðu eftir að kötturinn færi að leika sér að þeim.

M gekk nú beint í þrælahópinn allan og drap nokkra í viðbót með snörpum hreyfingum. Solla kom í kjölfarið og drap og særði nokkra. Um 20 þrælar í viðbót falla.

M stoppar svo skyndilega. Hún stendur í miðjum hópi þrælanna, umkringd þeim, og við fætur hennar líkamar fórnarlamba hennar og Sollu.

M leit í kringum sig, og þrælarnir litu á hana. Þótt hún væri ein með Sollu og þrælarnir væru nokkrir tugir þá var þetta samt ójafn leikur. Yfirburðir M voru það miklir.

En áfram heldur leikurinn og smátt og smátt fækkar í hópi þrælanna og M og S byrja að taka sér betri tíma til að svipta þá lífi. Til að sýna gott fordæmi þurfti að sýna hvernig uppreisn leiðir til þjáningarfullra pyntinga, og það gerðu þær.

Að lokum voru bara 3 þrælar eftir og M leyfði þeim að lifa aðeins lengur ef þeir skríða á eftir henni eins og hundar. Það gerðu þeir, og M og S koma sér í bað og dekur með þrjá þrælahunda á eftir sér.