18

Förinni var haldið áfram. 

M var með 20 þræla hjá sér en engan sem veitti henni nærandi félagsskap. Allir í kringum hana voru eign hennar, og allir hlýddu hverri skipun hennar. M hafði vanmetið fjarlægðina á næsta áfangastað og þörf sína fyrir félagsskap. Þetta þýddi bara eitt: Þrælarnir urðu að afþreyingu fyrir M.

Þegar hún hafði gengið í nokkra tíma fór M að leiðast, benti þræl á að koma til sín og hún kvaldi hann til dauða. Til að byrja með barði hún hann aðeins, mótspyrnulaust, þar til þrællinn lyppaðist niður. Þá fór hún kyrkja hann nánast til dauða en sleppti áður en hann dó og endurtók það í nokkur skipti. Þá kom hnífurinn upp og þrællinn var drepinn með yfirveguðum hætti. 

Í lok fyrsta ferðadags höfðu þrír þrælar drepist með þessum hætti.

Hinir bjuggu til skýli fyrir eiganda sinn og þrír í viðbót drápust sama kvöld.

Eftir tvo svona daga voru bara tveir þrælar eftir en sem betur fer stutt í næsta áfangastað. 

M leiddist þessi skortur á andspyrnu og ákvað að fara ein, fylgdarlaus og á yfirborðinu veik og varnarlaus inn á svæði næstu fórnarlamba hennar.

Loksins, þegar næsta svæði blasti við, lét hún þá þræla sem enn voru eftir krjúpa fyrir fætur sínar og skar þá á háls, með bros á vör.